Félag kúabænda á Suðurlandi sendir kollegum sínum norðan heiða góða kveðju
Þeir miklu erfiðleikar sem margir bændur á Norður- og Austurlandi eiga við að glíma vegna mikilla snjóa sem enn hylja tún þeirra hafa vakið athygli og bændur annarsstaðar á landinu hugsað hlýlega til þeirra. Hvort það hjálpi til við hlákuna er ekki gott að segja en Guðrún Lárusdóttir bóndi í Keldudal og formaður Búnaðarsambands Skagfirðinga segir það geti kannski hjálpað upp á sálartetrið að vita af hlýhug úr öðrum landsfjórðungi.
Eftirfarandi ályktun var samþykkt af hálfu félagsráðs Félags kúabænda á Suðurlandi í kjölfar umræðu um þessi mál á félagsráðsfundi þann 29.4. síðastliðinn og send viðkomandi búnaðarfélögum.
"Félag kúabænda á Suðurlandi lýsir stuðningi sínum og samhug með norðlenskum og austfirskum bændum sem barist hafa við vetrarharðindi í vetur og vor".