Ferðin á heimsenda - Gestaleiksýning í Bifröst í dag kl. 15 og 18

 Leikdeild Skallagríms í Borgarnesi sýnir barnaleikritið "Ferðin á heimsenda" eftir Olgu Guðrúnu Árnadóttur í Bifröst Sauðárkróki. Tvær sýningar verða í boði sú fyrri kl. 15:00 og sú seinni kl. 18:00

Leikritið er skemmtilegt ævintýri með tónlist þar sem vetrarálfar, músíktré, risastór kónguló, ósköp venjulegir krakkar, álfaprinsessa og galdrakarl koma við sögu.

Sjón er sögu ríkari.

Miðapantanir í síma 697-4322 

Alltaf gaman að sjá nýtt fólk á fjölum Bifrastar, sumir leikararnir hafa nú reyndar sést þar áður en Helga Kristín Bjarnadóttir sem vann á leikskólanum Glaðheimum fer þar með hlutverk.

Fleiri fréttir