Fimmtíu brautskráningar frá Hólum
Í dag fór fram brautskráning frá Háskólanum á Hólum. Brautskráð var frá öllum deildum og fór athöfnin fram í Menningarhúsinu Miðgarði í Varmahlíð. Sú hefð hefur skapast að brautskráning að vori sé haldin þar en á haustin í Hóladómkirkju.
Í ávarpi sínu fór rektor skólans, Erla Björk Örnólfsdóttir, m.a. yfir helstu vörður í starfi skólans undanfarið ár. Hún gat sérstaklega um erlent samstarf og þann fjölda erlendra nema sem stundaði nám við skólann á skólaárinu, ýmist sem reglulegir nemar, í skiptinámi eða gestanámi. Alls voru nemendurnir af 20 mismunandi þjóðernum öðrum en íslenskum.
Næstur tók einmitt til máls erlendur gestur, Philippe O'Quin sendiherra Frakklands á Íslandi. Í máli hans kom fram að það hefði komið honum á óvart að finna svo marga Frakka við nám og störf hér norður í landi, en í augnablikinu telja þeir 10 manns.
Deildarstjórar önnuðust brautskráningu sinna nemenda. Alls voru það 49 einstaklingar og þar af hlaut einn tvö skírteini þannig að í það heila tekið voru þær 50. Úr hestafræðideild voru 13 brautskráðir, allir með BS í reiðmennsku og reiðkennslu. Ein stúlka brautskráðist úr fiskeldis- og fiskalíffræðideild, með meistaragráðu í sjávar- og vatnalíffræði. Brautskráningar úr ferðamáladeild voru alls 36. Þar af hlutu 22 BA-próf í ferðamálafræði og einn diplómu í sömu fræðigrein. Diplómunám í viðburðastjórnum nýtur nokkurra vinsælda um þessar mundir, og að þessu sinni luku 13 manns slíku námi.
Viðurkenningar fyrir hæstu meðaleinkunn hlutu þessar: Á BS-prófi í reiðmennsku og reiðkennslu Hanna Rún Ingibergsdóttir, á BA-prófi í ferðamálafræði Berglind Ragnarsdóttir og fyrir diplómunám í viðburðastjórnun var það Guðrún Gígja Jónsdóttir.
Að afhendingu skírteina lokinni flutti Anna Margrét Jakobsdóttir Hjarðar ávarp fyrir hönd hópsins. Meðfram námi sínu við Háskólann á Hólum sinnti Anna Margrét ýmsum trúnaðarstörfum fyrir hönd nemenda. Til dæmis gegndi hún starfi formanns Stúdentafélags Hólaskóla og varafulltrúa nemenda í háskólaráði. Og það var einmitt hún sem kvaddi skólann sinn í dag með tvö splunkuný skírteini í farteskinu.
Athöfninni stýrði Helgi Þór Thorarensen, aldursforseti prófessora við skólann. Inn í athöfnina fléttuðust tónlistaratriði flutt af heimamönnum úr héraði, þeim Guðrúnu Jónsdóttur og Sigfúsi Benediktssyni. Að athöfn lokinni bauð skólinn viðstöddum til glæsilegs kaffihlaðborðs, sem reitt var fram af starfsmönnum Ferðaþjónustunnar á Hólum.