Firmakeppni Skagfirðings
Firmakeppni hestamannafélagsins Skagfirðings verður haldin sumardaginn fyrsta, 21. apríl á félagssvæðinu hjá Tjarnabæ. Keppt verður í: Pollaflokk (8 ára og yngri), barnaflokk, unglingaflokk, kvennaflokk, karlaflokk, atvinnumannaflokk og 60+.
Samkvæmt fréttatilkynningu verður skráning í Tjarnabæ frá 12-12:45, ein skráning á knapa, og keppni hefst kl. 13:00.
Kaffihlaðborð verður á staðnum og kaffisala.