Fjáröflunartónleikar fyrir minningarsjóð Aðalheiðar Erlu Gunnarsdóttur

Í kvöld verða haldnir tónleikar í Menningarhúsinu Miðgarði til styrktar minningarsjóði Aðalheiðar Erlu Gunnarsdóttur frá Syðra-Vallholti en sjóðurinn hefur árlega veitt styrki til nemenda úr Varmahlíðarskóla og Tónlistarskóla Skagafjarðar.

Fram koma nemendur Tónlistarskóla Skagafjarðar og nemendur úr eldri bekkjum Varmahlíðarskóla flytja syrpu úr GREASE. Fúsi Ben og Sigurlaug Vordís koma einnig fram, kvennakórinn Sóldís tekur lagið og Swingbræður bregða á leik við undirleik Stefáns R. Gíslasonar. Þá leikur Thomas Higgerson einleik á píanó.

Kynnir er Ágúst Ólason. Aðgangseyrir er 1.500 kr.

„Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir,“ segir í fréttatilkynningu.

 

Fleiri fréttir