Fjögurra ára styrktarsamningur vegna Elds í Húnaþingi

Meðfylgjandi mynd er frá undirritun samningsins í húsakynnum SSNV en þar voru samankomin þau Sveinbjörg Rut Pétursdóttir f.h. Elds í Húnaþingi, Elín R. Líndal f.h. Forsvars og Hæðarinnar á Höfðabraut, Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri Húnaþings vestra, Páll Sigurðsson útibússtjóri Landsbankans Hvammstanga og Reimar Marteinsson kaupfélagsstjóri KVH. Á myndina vantar Magnús Frey Jónsson framkvæmdarstjóra Sláturhúss KVH. Mynd: Norðanátt.is.

Í gærmorgun var undirritaður samningur milli unglistahátíðarinnar Elds í Húnaþingi og stærstu styrktaraðila hátíðarinnar. Samningurinn felur í sér árlegan styrk til hátíðarinnar næstu fjögur árin, eða tímabilið 2016-2019. Frá þessu var sagt á vefnum Norðanátt.

Styrktaraðilar skv. samningnum eru Húnaþing vestra, Landsbankinn Hvammstanga, Kaupfélag Vestur-Húnvetninga, Sláturhús KVH, Forsvar og Hæðin á Höfðabraut.

„Um er að ræða sambærilegan samning og undirritaður var í apríl 2012, þegar fyrsti styrktarsamningur vegna hátíðarinnar leit dagsins ljós. Samningur sem þessi er mikilvægur til að geta haldið áfram að bjóða upp á eins flotta hátíð og Eldur í Húnaþingi er orðin og gerir það jafnframt að verkum að hægt er að ráða verkefnastjóra við hátíðina. Húnaþing vestra, Landsbankinn, KVH og SKVH leggja öll til styrktarfjárhæðir í peningum. Hæðin á Höfðabraut leggur til skrifstofuaðstöðu fyrir verkefnastjóra og Forsvar aðstoðar við bókhald hátíðarinnar,“ segir í frétt á Norðanátt.

Fleiri fréttir