Fjölbreytt skemmtiatriði á árshátíð Grunnskólans austan Vatna
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
25.03.2015
kl. 08.48
Árshátíð Grunnskólans austan Vatna á Hofsósi verður haldin í félagsheimilinu Höfðaborg föstudaginn 27. mars og hefst kl. 20:00. Boðið verður upp á fjölbreytt skemmtiatriði, bæði leikþætti og söng.
Miðaverð fyrir grunnskólabörn er 500 kr. og 1.800 kr fyrir fullorðna. Kaffiveitingar eru innifaldar í verðinu.
Að skemmtun lokinni munu strákarnir í 9. og 10. bekk sjá um að halda uppi góðri stemmingu til kl 00:30 og skólabílar munu aka nemendum heim.