Fjöldatakmarkanir rýmkaðar og nándarreglan styttist

Frá 17. júní hátíðarhöldum á Sauðárkróki 2016. Mynd: Berglind Þorsteinsdóttir.
Frá 17. júní hátíðarhöldum á Sauðárkróki 2016. Mynd: Berglind Þorsteinsdóttir.

Frá og með 15. júní fara fjöldatakmörk úr 150 manns í 300 og nándarregla verður einn metri í stað tveggja. Á heimasíðu heilbrigðisráðuneytisins kemur fram að á sitjandi viðburðum verði engin nándarregla en öllum skylt að bera grímu. Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, þ.e. til miðnættis.

Heilbrigðisráðherra hefur ákveðið þessar breytingar á reglugerð um takmarkanir á samkomum innanlands og eru þær í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis en í minnisblaði sóttvarnalæknis segir að staðan hér á landi varðandi heimsfaraldur Covid-19 sé góð.

Frá 25. maí síðastliðnum þegar gildandi reglur voru settar hafa 42 einstaklingar greinst með Covid-19 innanlands, þar af 25 í sóttkví og síðustu daga hefur daglegum tilfellum fækkað mikið og enginn greinst utan sóttkvíar þrátt fyrir að mörg sýni hafi verið greind. „Það er því ljóst að þakka má útbreiddum bólusetningum á Íslandi og einstaklingsbundnum sýkingavörnum þann góða árangur sem við erum nú að sjá þó að ljóst sé að veiran er enn til staðar í samfélaginu“ segir í minnisblaði sóttvarnalæknis.

Helstu breytingar á samkomutakmörkunum frá og með 15. júní:

  • Almennar fjöldatakmarkanir 300 manns. Börn fædd 2015 og síðar áfram undanþegin.
  • Nándarregla einn metri í stað tveggja.
  • Sitjandi viðburðir: Engin krafa um nándarmörk. Áfram grímuskylda og að hámarki 300 manns í hverju sóttvarnahólfi. Með sitjandi viðburðum er átt við leikhús, íþróttaviðburði, athafnir trúar- og lífsskoðunarfélaga, ráðstefnur og viðlíka.
  • Veitingastaðir: Opnunartími veitingastaða lengist um klukkustund, frá kl. 23 til miðnættis. Gestir þurfa að hafa yfirgefið staðinn fyrir kl. 01.00.
  • Gildistími: Reglugerð sem felur í sér ofangreindar breytingar á samkomutakmörkunum innanlands mun gilda til og með þriðjudagsins 29. júní næstkomandi.

Sjá nánar Hér 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir