Fjölíðarlok hjá 5. bekk Árskóla - Myndband
Nú er skólastarfi að ljúka í grunnskólum landsins og afrakstur vetrarins borinn heim í hús í formi einkunna eða handavinnugripa. Fjölíð nefnist það sem áður var kallað handavinna og matreiðsla svo eitthvað sé nefnt og er orðið sett saman úr orðunum fjölbreytt handíð og kíkti Feykir á krakkana í 5. bekk Árskóla í fjölíðarlok þegar þeir stoltir sýndu foreldrum hvað verið var að fást við undanfarið í fjölíð.
https://www.youtube.com/watch?v=EIzwLA2y8bw