Fjölmennur íbúafundur á Hvammstanga

Um 120 manns sóttu íbúafundinn á Hvammstanga sl. mánudag.  Fundurinn þótti góður og fór vel fram. Mynd: Hunaþing.is
Um 120 manns sóttu íbúafundinn á Hvammstanga sl. mánudag. Fundurinn þótti góður og fór vel fram. Mynd: Hunaþing.is

Fjölmennur íbúafundur var haldinn í Félagsheimilinu á Hvammstanga á mánudagskvöldið þar sem kynntar voru deiliskipulagstillögur hafnarsvæðisins auk hugmynda um byggingu fimm hæða 20 íbúða húss á Hvammstanga. Að sögn Guðnýjar Hrundar Karlsdóttur, sveitarstjóra Húnaþings vestra, mættu um 120 manns á fundinn og gekk hann vel fyrir sig. Það var Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfræðingar SFFÍ  hjá Landmótun sem kynnti skipulagstillöguna. Guðný Hrund fór yfir valkostagreiningu vegna staðsetningar fjölbýlishúss og Páll Gunnlaugsson arkitekt fór yfir tegund og hönnun íbúða í fyrirhuguðu fjölbýlishúsi.

Eftir framsögur voru fyrirspurnir úr sal en fyrir svörum voru Eyjólfur Þórarinsson skipulagsfulltrúi, Ólafur Jakobsson byggingarfulltrúi, Guðný Hrund Karlsdóttir sveitarstjóri, Engilbert Runólfsson verktaki og Óskar Örn Gunnarsson skipulagsfræðingur.

Þrívíddarmynd af mögulegu fjölbýlishúsi við Höfðabraut. Mynd: Ask arkitekar.

 „Fundurinn var góður og fór vel fram. Mikið var rætt um staðsetningu fjölbýlishúss og voru skoðanir skiptar en einnig var rætt um fornleifar, smábátahöfn, bílastæði og fleira. Gagnlegar spurningar og ábendingar komu fram sem verða nýttar við áframhaldandi vinnu,“ segir Guðný Hrund. 

Skipulagið var fyrst auglýst sl. vor en vegna athugasemda var ákveðið að gera breytingar á skipulaginu og auglýsa aftur. Guðný segir að helstu breytingar frá fyrri tillögu séu þær að lóðir á Tanga eru felldar út, lóðamörkum breytt, ný rútustæði, möguleg göngubrú, rökstuðningur fyrir vali á íbúðarlóð og endurbætt fornleifaskráning.

Gert er ráð fyrir að tillagan verði afgreidd af sveitarstjórn þann 8. febrúar nk. og fari í framhaldi af því í auglýsingu.

Tengd frétt: Vill byggja fimm hæða blokk á Hvammstanga

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir