Fjölnismenn gerðu eina markið á Blönduósi
Tindastóll lék annan heimaleik sinn í 1. deildinni í sumar síðastliðinn föstudag og fór leikurinn fram á Blönduósi í norðan strekkingi. Mótherjarnir voru lið Fjölnis úr Grafarvogi þeirra Reykvíkinga en lið Fjölnis og Tindastóls voru á svipuðum slóðum í neðri hluta deildarinnar fyrir leikinn.
Fjölnir lék undan vindi í fyrri hálfleik og sköpuðu þeir sér nokkur sæmileg færi en þeir náðu ekki að skora fyrr en undir lok fyrri hálfleiks. Þá fengu þeir hornspyrnu sem send var á fjærstöng þar sem Fjölnismaður náði að skalla boltann inn á markteig og þar var Guðmundur Pétursson vel staðsettur og skallaði boltann í mark Stólanna.
Í síðari hálfleik sóttu Tindastólsmenn linnulítið en gekk illa að skapa sér dauðafæri. Árni Kristinn Gunnarsson í liði Fjölnis fékk að líta rauða spjaldið á 85. mínútu en Stólarnir náðu ekki að nýta sér liðsmuninn og annað 1-0 tap liðsins í röð leit því dagsins ljós.
Lið Tindastóls er nú í níunda sæti deildarinnar með 5 stig eftir 6 umferðir. Stigi fyrir ofan eru Fjallabyggðarkappar í KF en næsti leikur Stólanna er einmitt á Ólafsfirði 22. júní kl. 14:00. Fyrsti alvöru heimaleikur Tindastólsmanna verður væntanlega fimmtudaginn 27. júní þegar Bjarni Jó teimir KA-pilta út á Sauðárkróksvöll.