Fjölnismenn mæta í Síkið í kvöld

Í kvöld lýkur 15. umferð Domino´s deildarinnar í körfubolta þegar Fjölnir heimsækir Síkið á Sauðárkróki mætir liði Tindastóls og Þór Þorlákshöfn tekur á móti Stjörnunni. Leikurinn er Stólunum gríðarlega mikilvægur þar sem þeir sitja nú á botninum eftir að ÍR sigraði Skallagrím í gærkvöldi og komust með því upp úr botnsætinu. En með sigri í kvöld nær Tindastóll þeim aftur að stigum en með betra stigahlutfall.

Stólarnir hafa sitja neðstir með sex stig en ÍR og Fjölnir 8 stig hvort lið og segir á heimasíðu Tindastóls að vinnist leikurinn í kvöld með minnst 4 stigum, kemst Tindastóll upp fyrir Fjölni á innbyrðisviðureignum og það sem meira er, upp úr fallsæti. Þetta verður fyrsti leikur Tarick Johnson með Stólunum en hann getur spilað hvort sem er stöðu leikstjórnanda eða skotbakvarðar. Mikils er vænst af Johnson enda reynslumikill og ætti að verða heimamönnum mikill liðsstyrkur.

Allir að mæta í Síkið og styðja við bakið á drengjunum því þeir eiga það svo sannarlega skilið. Leikurinn hefst að venju klukkan 19:15.

Fleiri fréttir