Fjölskyldudagur hjá knattspyrnudeild í dag

Í dag miðvikudaginn 25. maí mun knattspyrnudeild Tindastóls halda fjölskyldudag á íþróttasvæðinu.  Gleðin hefst kl. 18:00 en þá munu þjálfarar og leikmenn meistaraflokkanna taka á móti krökkum í 3. 4. 5. 6. 7. og 8. flokki.

Krakkarnir og foreldrar hitta þjálfarana og geta spjallað við þá um sumarið, æfingatímann, æfingarnar og mótin sem framundan eru. Einnig verður farið í skemmtilegan leik sem allir geta tekið þátt í. Um kl. 18:40 verður öllum boðið í pylsugrill.

Þá munu fulltrúar frá KSÍ, Feykir hefur heyrt að fulltrúarnir, verði Hólmar Örn Eyjólfsson og Eyjólfur Sverrisson vera á staðnum og afhenda öllum iðkendum í 3. 4. 5. 6. 7. og 8 flokkum nýjan og vandaðan DVD disk sem nefnist Tækniskóli KSÍ.

Markmiðið með disknum er að efla knatttækni komandi knattspyrnu-kynslóðar, hvetja til aukaæfinga, jákvæðrar hreyfingar og vekja athygli á heilbrigðum fyrirmyndum í A-landsliði karla og kvenna og í U-21 árs landsliði karla.

Fleiri fréttir