Fjölskyldudagur í Ásdísarlundi í Miðfirði
Fjölskyldudagur verður í Ásdísarlundi í Miðfirði, sunnudaginn 14. ágúst, frá kl. 14 – 17. Kvenfélagið Iðja stendur fyrir þessari notalegu samverustund og býður alla velkomna.
Ásdísarlundur er skemmtilegt útivistarsvæði sunnan við Krókstaðamela. Gönguleið liggur í genum lundinn og lítill lækur rennur um hann. Ýmsir leikir verða í boði fyrir alla fjölskylduna, t.d. kubb, rólur og sandkassi. Á staðnum verður einnig tjald með kaffi- og kökusölu.