Fjölskylduvænir tónleikar í Hóladómkirkju
feykir.is
Skagafjörður, Listir og menning
09.06.2015
kl. 14.01
Næstkomandi sunnudag verður messað í Hóladómkirkju kl. 11:00. Prestur er séra Jón Ómar Gunnarsson og organisti Jóhann Bjarnason. Í hádeginu gefst gestum Hóla kostur á að fá sér súpu og saltabar á veitingastaðnum Undir Byrðunni fyrir aðeins 1600 krónur.
Eftir hádegi, eða kl. 14:00 verða fjölskylduvænir tónleikar í kirkjunni. Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján Hjartarson syngja og leika á gítar. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.