Fjör á Bókasafninu á Hvammstanga á öskudaginn

Bókasafnið á Hvammstanga er vinsæll viðkomustaður á öskudaginn. Myndir: Guðmundur Jónsson.
Bókasafnið á Hvammstanga er vinsæll viðkomustaður á öskudaginn. Myndir: Guðmundur Jónsson.

Að venju var líf og fjör á Bókasafni Húnaþings vestra á Hvammstanga á öskudaginn. Að sögn Guðmundar Jónssonar, starfsmanns þar, flykktust börnin þangað til að syngja og  þáðu sælgæti fyrir.

„Því miður gátum við ekki boðið upp á Bangsafisk eins og við höfum oft gert,“ sagði Guðmundur í skeyti sem fylgdi þessum skemmtilegu myndum sem hann sendi Feyki.    

Fleiri fréttir