Fjör á tréhesti

Mikið fjör var á laugardaginn í reiðhöllinni  á Hvammstanga þegar yngstu börnin mættu í grímubúningum á reiðnámskeiðið sem þau hafa sótt í vetur. Eftir tímann var boðið upp á pylsur, gos og kökur. Í tímanum á eftir var haldin "gaman-keppni" í fimleikum á hesti þar sem nokkrir hópar kepptu á nýja tréhestinum sem staðsettur er í höllinni og Tveir Smiðir sköpuðu.

Hóparnir áttu að vera með atriði sem þau sáu um að semja og átti atriðið að innihalda fimm skylduæfingar. Þau áttu að finna nafn á hópinn sinn og búa til búninga fyrir atriðið sitt. Krakkarnir sem tóku þátt í þessari keppni eru búnir að æfa misjafnlega lengi og sumir hafa ekkert æft, en allir mættu galvaskir og spenntir í reiðhöllina til að hafa gaman af þessu. Það eru þær Kathrin Martha Schmitt og Irina Kamp sem sjá um að þjálfa krakkana.

Fjórir hópar tóku þátt í keppninni og fengu þeir allir smá viðurkenningu fyrir þátttöku í keppninni. Sigurvegarar keppninnar sýna svo atriðið sitt á alvöru hesti í reiðhallarsýningunni sem verður 19. apríl nk. Hópurinn sem vann keppnina kallaði sig Svörtu stjörnurnar, og í þeim hóp voru Rakel Ósk Ólafsdóttir, Fríða Björg Jónsdóttir og Bryndís Jóhanna Kristinsdóttir.

Myndir frá deginum er hægt að nálgast HÉR

/Þytur

Fleiri fréttir