Fjör fyrir alla fjölskylduna á Jónsmessuhátíð

Nú styttist í Jónsmessuhátíðina á Hofsósi sem státar af fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá frá föstudeginum 19. júní til sunnudagsins 21. júní. Um er að ræða fjölskylduhátíð og eiga allir að geta fundið sér eitthvað við hæfi og vilja skipuleggjendur hátíðarinnar vekja sérstaka athygli á barna- og ungmennaskemmtun sem hefur verið skipulögð í samstarfi við Félagsmiðstöðina Frið.

Föstudagskvöldið 19. júní býður Félagsmiðstöðin Friður og Jónsmessuhátíð öllum ungmennum á aldrinum 12-18 ára í sundlaugapartý í sundlauginni á Hofsósi frá kl. 21-23. Dúndrandi tónlist verður að sjálfsögðu á bakkanum.

Laugardaginn 20. júní, frá kl. 13-17, verður hægt að fara í hoppukastala, teymt verður undir, trampólín, skeifukast, kassaklifur, útileikföng mini golf og reiðhjólakeppni. Skralli trúður mætir á svæðið og boðið verður upp á grillpylsur og karamelluregn.

Kl. 16 verður skemmtilegur ratleikur um Hofsós fyrir ungmenni, vegleg verðlaun í boði.

Það verður sko aldeilis fjör á Hofsósi um helgina - fleiri dagskrárliði má sjá með því á smella á auglýsinguna hér til hliðar og á myndinni hér að neðan.

jonsmessa1 jonsmessa2

Fleiri fréttir