Fjör um Laufskálaréttarhelgina

Jógvan og Pétur Jesú ætla að hita upp fyrir Laufskálaréttarhelgina í Miðgarði annað kvöld, föstudaginn 28. september. Húsið opnar kl. 22 en dansgólf og barstemning verður á efri hæðinni. Þá ætla Paparnir einnig að hita upp fyrir helgina á Mælifelli á föstudagskvöldið. 

Stóðréttarball verður haldið á í Höfðaborg á Hofsósi á laugardagskvöldið og ætla Stulli og Dúi að skemmta fram eftir nóttu. Gestasöngvari kvöldsins er enginn annar en sætabrauðsdrengurinn Róbert Óttarsson bakari. Húsið opnar kl. 23 og aðgangseyrir 2500 kr. Aldurstakmark 18 ár og verður vínveitingasala á staðnum.

Sjálft Laufskálaréttarballið verður svo haldið í reiðhöllinni Svaðastöðum á laugardagskvöldið en þar mun hljómsveitin Von halda uppi stuðinu, ásamt landsliði söngvara; Siggu Beinteins, Ingó veðurguði, Jógvani og Vigni Snæ. Ballið hefst kl. 23 og er miðaverð 3000 kr. Aldurstakmark er 16 ár.

 

Fleiri fréttir