Fjórði leikur einvígs Stóla og Hauka í Hafnafirði í kvöld

Fjórði leikurinn í einvígi Tindastóls og Hauka í undarúrslitum Domino´s deildarinnar fer fram í Ásvöllum í Hafnafirði í kvöld. Staðan er 2-1 fyrir Tindastól, ef Stólarnir bera sigur af hólmi komast þeir í úrslitarimmuna en ef Haukarnir ná að jafna einvígið verður fimmti leikurinn á föstudag í Síkinu.

„Hvetjum alla Skagfirðinga á höfuðborgarsvæðinu til að mæta á Ásvelli 1 í kvöld kl 19:15 og styðja hressilega við bakið á strákunum,“ segir á vef Tindastóls.

Leikur Hauka og Tindastóls verður í beinni útsendingu á haukartv.is. „Heyrst hefur að þeir sjónvarpsmenn hjá haukartv séu komnir með nýjan og betri búnað til útsendingar, frábært framtak hjá Haukum,“ segir loks á vefnum.

Koma svo Stólar!

Fleiri fréttir