Fjórir áfram í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna

Fjórir af fjörtíu nemendum sem komust áfram í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna eru nemendur í Varmahlíðarskóla.
Fjórir af fjörtíu nemendum sem komust áfram í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna eru nemendur í Varmahlíðarskóla.

Fjórir nemendur í Varmahlíðarskóla voru valdir úr fjölmennum hópi til að fara á vinnustofu Nýsköpunarkeppni grunnskólanna. Í ár bárust keppninni 1750 hugmyndir að nýsköpun og áttu nemendurnir fjórir þrjár þeirra.

Það eru þær Lilja Diljá Ómarsdóttir og Flóra Rún Haraldsdóttir í 5. Bekk sem eiga hugmynd að takka- og inniíþróttaskóm. Óskar Aron Stefánsson og Indriði Ægir Þórarinsson í 6. bekk eiga tvær hugmyndanna, tappahníf og markarskrárapp.

Dómnefnd keppninnar kom saman í síðustu viku og valdi 40 nemendur í úr hópi þeirra sem sendi inn hugmyndir. Þeir munu svo taka þátt í vinnustofu dagana 19.-22. maí, þar sem úrslit keppninnar munu ráðast. 

Fleiri fréttir