Fjórir Íslandmeistaratitlar á MÍ 15-22 ára
Meistaramót Íslands í frjálsíþróttum fyrir 15-22 ára fór fram um sl. helgi í Laugardalshöll í Reykjavík. Um 240 keppendur voru skráðir til leiks sem var nokkuð meira en á sl. ári, samkvæmt heimasíðu Frjálsíþróttasambandi Íslands (FRÍ). Keppendur komu frá 17 félögum og samböndum og kepptu í samtals 784 greinum.
Skagfirðingar fjölmenntu á mótið og unnu keppendur UMSS fjóra Íslandsmeistaratitla á mótinu, fjögur silfur og þrjú brons. Skagfirsku piltarnir í flokki 16-17 ára urðu í 3. sæti í stigakeppninni en allur hópurinn hafnaði í 6. sæti af 19 liðum í samanlagðri stigakeppni mótsins, segir á heimasíðu Tindastóls.
Verðlaunahafar UMSS:
Daníel Þórarinsson (18-19) sigraði í 200m, varð í 2. sæti í 60m og 800m.
Jóhann Björn Sigurbjörnsson (16-17) sigraði í 60m hlaupi, varð 2. í 200m og 3. í hástökki.
Ísak Óli Traustason (16-17) sigraði í hástökki, varð 3. Í 60m grindahlaupi.
Halldór Örn Kristjánsson (20-22) sigraði í hástökki.
Þorgerður Bettína Friðriksdóttir (16-17) varð í 2. sæti í 200m.
Guðjón Ingimundarson (20-22) varð í 3. sæti í 60m grindahlaupi.