Fjöruhlaðborð í Hamarsbúð orðsending frá Húsfreyjunum

Sumarhátíðin Bjartar nætur verður í Hamarsbúð á Vatnsnesi laugardaginn 25. júní næstkomandi og hefst klukkan 19. Þar bjóða Húsfreyjurnar gestum að sérstæðu Fjöruhlaðborði sem svignar undan fjölbreyttum og sjaldséðum mat.

 Áhugasömum bent á að matseðillinn er birtur á vef Norðanáttar, www.nordanatt.is.

Miðaverð er 3.500 krónur fyrir fullorðna og 1.000 krónur fyrir börn 6 – 12 ára. Bögglauppboð, fjöldasöngur og tónlist verða á sínum stað.

 Af óviðráðanlegum aðstæðum verður ekkert af gönguferðinni sem auglýst hefur verið í bæklingi Húsfreyjanna. Fjallageitum er bent er á fjallaskokk Ungmennafélagsins.

Fleiri fréttir