Fléttan fær þrjár milljónir
Fléttan - verkefni til að efla nærþjónustu í Skagafirði fyrir langveik börn og börn með ADHD/ADD – fékk nýlega þriggja milljón kr. styrk frá Velferðarráðuneytinu. Með þessum styrk er unnt að halda verkefninu áfram en það var sett á laggirnar á sl. ári og hlaut þá líka þriggja milljón króna styrk.
Verkefnið er enn í fullum gangi, en fyrsti áfangi þess er á lokastigi. Lögð er áhersla á ráðgjöf, stuðning og fræðslu fyrir foreldra og starfsfólk sem sinnir börnunum í skóla (grunnskóla, leikskóla og heilsdagsskóla) og frístundaþjónustu. Tilgangurinn er að þau úrræði sem börnunum býðst nýtist þeim sem best og að starfsmenn sveitarfélagsins vinni saman að því markmiði. Á síðasta ári var stofnað foreldrafélag sem er vel virkt og er helsti samstarfsaðili sveitarfélagsins til að vinna að framgangi verkefnisins.
Í fyrrasumar var áhersla lögð á Sumar-T.Í.M. Frá byrjun skólaárs hefur áhersla verið lögð á skólastarfið. Fræðslufundir hafa verið haldnir fyrir starfsfólk allra skólanna. Unnið er að verkferlum um samstarf hinna ýmsu þjónustuaðila, í samstarfi við foreldrafélagið. Einnig má nefna aukna áherslu á liðveislu á heimilum og stuðningsfjölskyldur.
Framundan er mat á árangri m.a. með viðhorfsathugun hjá foreldrum og síðan áframhald af fullum krafti með hliðsjón af því sem best hefur heppnast og kúrsinn leiðréttur þar sem þörf þykir.