Fljóta, slaka og njóta

Auður Björk Birgisdóttir og eiginmaður hennar, Rúnar Páll Hreinsson, standa að Infinity blue. Mynd: KSE
Auður Björk Birgisdóttir og eiginmaður hennar, Rúnar Páll Hreinsson, standa að Infinity blue. Mynd: KSE

Fyrirtækið Infinity Blue tók til starfa á Hofsósi í byrjun þessa mánaðar. Það eru hjónin og bændurnir  Auður Björk Birgisdóttir og Rúnar Páll Hreinsson á Grindum sem standa að fyrirtækinu og bjóða þau upp á róandi miðnæturböð í sundlauginni á Hofsósi. Blaðamaður Feykis lagði leið sína þangað eitt kvöldið í síðustu viku, kynnti sér starfsemina og prófaði þessa áhugaverðu nýjung.

Infinity blue bíður upp á flot, sem er vatnsmeðferð með áherslu á slökun og núvitund, meðan gestir njóta norðurljósa, stjörnubjarts himins eða miðnætursólar, allt eftir árstíðum og veðri. Auður Björk segir að byrjunin lofi góðu, en frá því að þau opnuðu hefur fjöldi gesta komið og notið. „Sumir hafa líka komið aftur og það er frábært,“ segir hún. Rætt er við Auði í nýjasta tölublaði Feykis sem kom út á miðvikudaginn.

Fleiri fréttir