Flokkunarfræðin fangaði athygli gestanna

Áhugasamir nemendur í verinu. Mynd: Hólar/ Camille
Áhugasamir nemendur í verinu. Mynd: Hólar/ Camille

Á mánudaginn heimsóttu 40 nemendur úr 8. bekkjum Árskóla á Sauðárkróki Verið Vísindagarða. Stöldruðu þau við í þrjár klukkustundir og drukku í sig margvíslegan fróðleik um fjölbreytileika í vistkerfum sjávar og ferskvatns, eins og sagt er frá á vef Háskólans á Hólum..

Starfsmenn og framhaldsnemar í Verinu höfðu sett upp fjórar stöðvar sem gestirnir skiptust á um að heimsækja. Það var ekki síst flokkunarfræðin sem fangaði athygli gestanna, að því er fram kemur á vefnum, en fleiri myndir frá heimsókninni er að finna þar.

 

Fleiri fréttir