Flugtalning á landsel gekk vel

Stofnstærðar talning á landsel fór fram í júlí og ágúst sl., þar sem flogið var yfir alla landshluta og sjáanlegir selir taldir.

Á heimssíðu Selaseturs Íslands kemur fram að flugtalningarnar hafi gengið mjög vel. Veður var mjög hagstætt og því hafi engar seinkanir orðið á verkefninu eins og vill oft verða þegar flugveður er slæmt.

Allt að þrjár ferðir voru farnar yfir helstu látrin og allir sjáanlegir selir taldir. Þegar um stór látur var um að ræða voru teknar myndir og selirnir taldir útfrá þeim, til þess að talningar yrðu sem marktækastar. Verið er að vinna úr gögnunum eins og er.

Sandra Granquist, starfsmaður Selasetursins og Veiðimálastofnunar, var verkefnisstjóri flugtalningarverkefnisins. Erlingur Hauksson hjá Rannsjá sá um talningar, ásamt aðstoðarmönnunum Örnu Björg Árnadóttur, sumarstarfsmanns Veiðimálastofnunar og Jacobs Caspers, starfsmanns Hafrannsóknarstofnunnar og BioPols á Skagaströnd.

Fleiri fréttir