Förðunarleikur Fröken Fabjúlöss!!

Fröken Fabjúlöss hafði svo agalega gaman að naglalökkunarleiknum að nú hefur hún bætt um betur og ákveðið að fara af stað með förðunarleik til að fegra upp skammdegið sem dembist yfir almúgann af fullum þunga þessa dagana!

Leikurinn er svipaður í sniðum og naglalökkunarleikurinn. Nú er um að gera að grípa förðunarburstann og láta hann líða um andlit ykkar eða vinkonu ykkar, taka svo mynd og senda á frokenfab@nyprent.is ! Það má vera mynd af öllu andlitinu, bara vörum ef varalitur er það sem fær förðunarhjarta ykkar til að slá örar eða bara augunum/auganu! Nú er um að gera að láta innblástur og litagleði taka völdin!

Verðlaunin eru ekki af verri endanum í þetta skipti! Gellurnar hjá NYX á Íslandi voru svo yndislegar leggja til verðlaunin í leikinn og mun sú heppna sem dregin verður út fá: 20 lita augnskuggapallettu, flottann pakka sem inniheldur 10 varagloss, maskara og gerfiaugnhár!
Ekki er þetta af lakara taginu stelpur!!!

Fröken Fabjúlöss mun bíða í ofvæni eftir að fá myndirnar í pósthólfið, allir sem vettlingi eða förðunarbursta geta valdið mega taka þátt og engar hæfniskröfur aðrar en förðunaráhugi eru gerðar! Það geta allir, ungir sem aldnir, kvenkyns og karlkyns, tekið þátt! :)

Fleiri fréttir