Formaður Frjálslynda Íslandsmeistari í sjósundi

Sigurjón Þórðarson formaður Frjálslynda flokksins og sundkappi Skagafjarðar varð Íslandsmeistari í sjósundi í Nauthólsvíkinni sl. miðvikudag þegar Íslandsmótið í Sjósundi 2012 fór fram. Sigurjón synti 3. km og varð langfyrstur í flokki 40 ára og eldri án galla og 3. af öllum gallalausum keppendum.

Sigurjón segist hafa farið út af brautinni í Nauthólsvíkinni og synt því lengra en þessa 3 km sem brautin mælist en tíminn hjá honum var 56,40 mínútur.  Hann segist ekki synda mikið í sjónum reglulega en stundar sundlaugina á Sauðárkróki af kappi enda alltaf að bæta sig í keppnum. „Ég verð orðinn góður um sjötugt,“ segir þessi magnaði sundkappi.

Fleiri fréttir