Formannsskipti í Léttfeta
Í gærkvöldi var haldinn aðalfundur Hestamannafélagsins Léttfeta á Sauðárkróki. Helstu tíðindi eru þau að formannsskipti urðu þar sem Guðmundur Sveinsson sem verið hefur þar í formannsstól s.l. átta ár gaf ekki kost á sér til áframhaldandi setu. Úlfar Sveinsson nýr formaður.
Félagið var rekið með tapi upp á rúmar sexhundruð fimmtíu og eitt þúsund krónur sem skírist af mestu leyti af því að kostnaður við unglingastarf hefur aukist um rúmlega helming milli ára sem og miklar framkvæmdir við skeiðvöll kostaði drjugan skilding.
Félagar í Léttfeta voru í árslok alls 252 og nítján nýjir aðilar bættust í hópinn á aðalfundinum.
Eins og áður sagði urðu formannsskipti á fundinum en stungið var upp á tveimur aðilum sem sátu fundinn. Úlfar Sveinsson fékk flest atkvæðin eða alls 19 atkvæði en Hörður Þórarinsson kom næstur með 10 atkvæði. Sjö seðlar voru auðir eða ógildir og fjögur atkvæði skiptust milli þriggja aðila.