Forsölu lýkur á fimmtudag
Spennan magnast fyrir Gærunni tónlistarhátíð sem fer fram í húsnæði Loðskinns um næstu helgi, dagana 13. – 15. ágúst, og er allt að vera klárt að sögn Adams Smára Hermannssonar skipuleggjanda. Miðasala er í fullum gangi á Tix.is og eru rúmlega 300 miðar seldir á hátíðina.
Adam Smári segir góða stemningu vera fyrir hátíðinni og telur hann að met verði slegið í forsölu en nú þegar hafa fleiri miðar selst en áður.
Hátíðin hefst á fimmtudeginum með Sólóista kvöldi á Mælifelli. Þar opnar húsið klukkan átta og dagskrá hefst klukkan níu og endar á miðnætti, en húsið verður opið eitthvað lengur. Á föstudags- og laugardagskvöldinu opnar svæðið klukkan sjö og fyrstu bönd stíga á svið klukkan átta. Dagskráin verður svo búin á miðnætti og þá taka við böllin á Mælifelli og þau verða til klukkan fjögur.
Dagskrá hátíðarinnar er eftirfarandi:
-Fimmtudagur - Sólóistakvöld
- Gillon
- Óskar Harðar
- James Wallace
- Teitur Magnússon
- Bergmál
- Hemúllinn
-Föstudagur
- Trukkarnir
- Dalí
- Röskun
- Páll Óskar (a.k.a. Paul Oscar)
- Axel Flóvent
- DIMMA
- Geirmundur Valtýsson
-Laugardagur
- Vio – band
- Alchemia band
- Stafrænn Hákon
- Sniglabandið
- Lockerbie
- Bjartmar Guðlaugsson
- The Roulette
- Amaba Dama
Þess má geta að forsölu miða lýkur á Tix.is nk. fimmtudag þar sem armbandið á hátíðina er á 6900 kr. Einnig verður hægt að kaupa við dyrnar en þar kostar það 7900 kr. Armböndunum fylgja ýmis afsláttarkjör, m.a. á böllin í Mælifelli, tjaldsvæðin í Skagafirði og fleira.