Forystumaður úr Fljótum
Þann 1. mars sl. voru 100 ár liðin frá fæðingu Skagfirðingsins Ólafs Jóhannessonar prófessors og forsætisráðherra. Í tilefni þess gefur Sögufélag Skagfirðinga út sjálfsævisögu í minningu hans. Umfjöllunarefni bókarinnar nær yfir bernsku- og uppvaxtarár Ólafs í Fljótum í Skagafirði, félagslíf þar, farið er milli bæja og sagt frá sveitungum, skólaárum í MA og síðan lagadeild Háskólans, frá starfi hans í þjónustu Samvinnuhreyfingarinnar og síðar kennslu í lagadeildinni. Kafli er um upphaf stjórnmálaafskipta og byrjun þingmennsku en lengra auðnaðist honum ekki að komast. Lýkur þar æviminningum Ólafs Jóhannessonar.
Tengdasonur Ólafs, Dr. Einar Gunnar Pétursson, ritar aðfaraorð bókar en Sigfús Ingi Sigfússon í Stóru-Gröf, fv. framkvæmdastjóri Framsóknarflokksins, ritar eftirmála þar sem hann gerir í stórum dráttum grein fyrir fjölskylduhögum og stjórnmálaferli Ólafs til æviloka. Bókin hefur hlotið heitið Forystumaður úr Fljótum. Undirtitill: Sjálfsævisaga Ólafs Jóhannessonar fv. forsætisráðherra. Hún verður um 220 bls. að stærð, prýdd 60-70 ljósmyndum.
Á heimasíðu Sögufélags Skagfirðinga segir að vandað sé til útgáfunnar, bókin saumuð og bundin í harðspjöld með lausblaðakápu og mun hún væntanleg í sumarbyrjun 2013.
Fólki er gefinn kostur á að gerast áskrifandi og fá nafn sitt skráð á lista sem prentaður verður í bókinni, tabula memorialis. Hjón eða sambýlisfólk geta einnig fengið bæði nöfn skráð á listann. Til að komast inn á tabulu þarf pöntun að berast í síðasta lagi 20. apríl 2013.
Sjá nánar á heimasíðu Sögufélags Skagfirðinga