Fótboltastelpur voru í aðal hlutverki á Króknum um helgina

Tindastóls stelpur stóðu sig vel á Króksmóti. Mynd:fb,ób mót Tindastóls.
Tindastóls stelpur stóðu sig vel á Króksmóti. Mynd:fb,ób mót Tindastóls.

Stelpu hluti Króksmóts ÓB 2025 fór fram um helgina og tókst gríðar vel. Á Fb. Síðunni ÓB mót Tindastóls má finna eftirfarandi:

„Takk fyrir komuna á Króksmót ÓB 2025

Veðrið lék heldur betur við okkur þessa helgina og vonum við að stelpurnar hafi notið sín.

Sigurvegarar helgarinnar voru:

Drangey 1: FH Ída Marín

Drangey 2: KA Portúgal

Málmey 1: FH Arna

Málmey 2: Tindastóll X

Þórðarhöfði 1: FH Aldís

Þórðarhöfði 2: Breiðablik Telma Ívars

Lundey 1: Stjarnan gular

Lundey 2: Haukar lauf

Stjarnan hlaut svo háttvísisverðlaun KSÍ en keppendur gerðu okkur í mótsstjórninni erfitt fyrir í ár með valið enda voru stelpurnar allar til fyrirmyndar á mótinu.

Sérstakar þakkir fá allir sjálfboðaliðar sem að komu að mótinu, án ykkar væri þetta ekki hægt“

Guðbjörg Óskarsdóttir formaður mótsstjórnar segir: „ Frábærri helgi að ljúka, mótsgestir frábærir, veðrið frábært og fólkið á bak við tjöldin á mótinu (mörg hver reyndar vel sýnileg) frábærast í heimi og geimi. Við hjá Tindastól erum alveg fáránlega heppin með fólk sem er tilbúið að leggja allt sitt í að sjá til þess að svona mót gangi upp. Þið eruð best.

Next up: Króksmót drengja.... hlakka til að fá strákana í heimsókn á Krókinn”.

Króksmót drengja verður svo haldið helgina 9-10 ágúst og verður ekki minni gleði þar. hmj

Fleiri fréttir