Frá hugmynd til vöru
Nú í maí bjóða Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sveitarfélagið Skagafjörður og Farskólinn - miðstöð símenntunar á Norðurlandi vestra upp á stutt námskeið fyrir frjóa einstaklinga sem búa yfir góðri viðskiptahugmynd og langar að þróa hana að veruleika.
Um er að ræða þriggja námskeiða röð og verða öll námskeiðin haldin í húsnæði Farskólans við Faxatorg á Sauðárkróki. Fyrsta námskeiðið verður næstkomandi mánudag, 13. maí. Þar bendir Sigurður Steingrímsson, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Akureyri, á leiðir til að koma auga á tækifæri og sýnir dæmi um hugmyndir sem urðu að veruleika.
Annar hluti námskeiðsins verður kenndur þriðjudaginn 21. maí og ber yfirskriftina „Frá hugmynd að veruleika.“ Þar mun Erla Sigurðardóttir, verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Húsavík, leiðbeina um mat á hugmyndum og kynna aðferðir sem auðvelda fólki að meta hvort hugmyndir geta orðið „viðskiptahugmyndir.“ Einnig fjallar Erla um fyrstu skref í þróun viðskiptahugmynda til veruleika.
Þriðji og síðasti hlutinn verður kenndur föstudaginn 24. maí. Þá mun Selma Dögg Sigurjónsdóttir verkefnisstjóri hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands á Akureyri, fjalla um helstu leiðir til að kynna og selja vörur og þjónustu.
Öll námskeiðin eru ókeypis en áhugasamir þurfa að skrá þátttöku á www.nmi.is.