Frábærar viðtökur í Húnaþingi vestra
Hlaupararnir í söfnuninni Meðan fæturnir bera mig hlupu í gær í Húnaþingi vestra og slógust heimamenn í för með þeim að gatnamótunum að Hvammstanga, margir hverjir frá sýslumörkunum við Gljúfurá. Hlauparar átaksins voru í skýjunum með móttökurnar; "Miðað við stærð bæjarfélagsins vorum við gáttuð á hversu margir hlupu með okkur að gatnamótunum á Hvammstanga."
Hlaupararnir segjast hafa fundið vel fyrir hlýju og velvild bæjarbúa en við móttökuna á Hvammstanga beið þeirra fjöldi fólks og vorum þeim færðar gjafir. Söfnunin fékk styrk frá Sveitastjórn Húnaþings vestra, KVH, Sláturhúsinu og Landsbankanum á Hvammstanga en auk þess fengu þau fjölda gjafa frá Sæluostum, Brauð- og kökugerðinni, KVH, Tjaldsvæðinu Kirkjuhvammi, Selasiglingum, Selasetri Íslands, Kraftsmiðjunni, Íþróttamiðstöðinni Hvammstanga og svo steinakarla.
"Ef allir eru svona yndislegir á Hvammstanga getur maður varla fundið betri stað til að búa á, segir á heimasíðu átaksins"
/Norðanátt