Fræðslu og kynningarfundur um bogfimi og bogveiði

Bogveiðifélag Íslands verður með fræðslu og kynningarfund um bogfimi og bogveiði laugardaginn 5. febrúar kl 14.00 í Húsi frítímans  á Sauðárkróki. Telja forsvarsmenn félagsins að þetta sé fyrsti opinberi fundur hér landi um hvað varðar bogveiði. Til sýnis verða æfinga, keppnis og veiðibogar.

Farið verður yfir sögu bogfimi á Íslandi sem íþróttagrein, lög/reglur um bogaeign og borin saman við önnur lönd Evrópu víðar en hún er nokkuð frábrugðin nágrannalöndum og er talið að lögin í dag hamli útbreiðslu á þessari íþrótt hér á landi. Einnig verður farið yfir sögu bogveiði í Evrópu, rannsóknir, leyfilegar veiðiaðferðir samkvæmt alþjóðasamningum og ESB o.fl. 

Bogveiðifélag Íslands var stofnað á Sauðárkróki í nóvember síðast liðnum og er formaður þess Indriði Ragnar Grétarsson.

Sjá nánar Hér

Fleiri fréttir