Fræðsludagur skólanna í Skagafirði

Árlegur fræðsludagur leik- grunn- og tónlistarskóla Skagafjarðar var haldinn í Miðgarði s.l. föstudag. Dagurinn markar upphafið að nýju skólaári og er þetta í sjötta sinn sem fræðsludagurinn er haldinn. Þar koma saman allir starfsmenn skólanna, um 200 manns.

Markmið fræðsludagsins er að fræðast um fagleg málefni sem snerta skólastarf og skiptast á hugmyndum og nýjungum. Dagurinn býður einnig upp á að starfsmenn, hvar í skóla sem þeir starfa, efli kynni sín á milli og auki skilning sinn á því mikla starfi sem fer fram í skólasamfélaginu í Skagafirði.

Ketill Berg Magnússon, framkvæmdastjóri Festu - miðstöðvar um samfélagsábyrgð fyrirtækja flutti erindi um siðfræði, fagmennsku, sjálfbærni og samfélagsábyrgð. Auk þess voru flutt erindi um læsisstefnu sem verið er að móta fyrir alla þessa skóla og ytra mat. Þá voru haldnar átta málstofur þar sem skólafólk í Skagafirði miðlaði ýmsum verkefnum og þróunarstarfi sem unnið er að í skólunum.

Fleiri fréttir