Fræðslustjóri að láni

Verkefnið Fræðslustjóri að láni er hafið í Húnaþingi vestra en markmið þess er að  gera sveitarfélaginu kleift að setja fræðslu starfsmanna í markvissan farveg. Felst það í því að bæta gæði þjónustu, auka  framlegð og starfsánægju starfsmanna.

Á heimasíðu Húnaþings vestra segir að það sé Sveitamennt og Kjölur sem leggi til Fræðslustjóra að láni, fræðslu- og mannauðsráðgjafa sem greinir fræðsluþörf starfsfólks og semur fræðsluáætlun byggða á greiningunni. Fræðsluáætlunin mun verða með útfærslu að leiðum, tímasetningu námskeiða og tillögum að fræðsluaðilum ásamt aðgerðum um þjálfun og menntun til styttri og lengri tíma. Þarfagreining á fræðslu verður unnin í nánu samstarfi með starfsmönnum og stjórnendum Sveitarfélagsins.

Fleiri fréttir