Framhaldsprófstónleikar Ásgeirs Trausta Einarssonar

Ásgeir Trausti Einarsson tónlistarmaður hélt framhaldsprófstónleika í Hvammstangakirkju s.l. laugardag og var aðsókn á tónleikana mjög góð, og ekki bar á öðru en að tónleikagestir hafi notið þessarar stundar. Ásgeir Trausti hóf tónlistarnám í Húnaþingi vestra þegar hann var aðeins 7 ára gamall og er enn að.

Á Norðanáttinni segir að kennari Ásgeirs í sjö ár var Guðmundur Hólmar Jónsson, svo lærði hann í eitt ár hjá Guðmundi Jóhanni Hallvarðssyni í Tónlistarskólanum í Garði. Síðastliðin fjögur ár hefur Ásgeir stundað gítarnám hjá Páli Eyjólfssyni.

Ásgeir Trausti hefur stundað nám í Fjölbrautarskólanum við Ármúla og er nú að ljúka sínu þriðja ári þar. Á tónleikunum afhenti Elínborg Sigurgeirsdóttir Ásgeiri gjöf frá starfsfólki Tónlistarskóla Húnaþings vestra, og var það fótskemill fyrir klassískan gítarleik. Einnig fékk hann gjafabréf í Tónastöðina frá Tónlistarskólanum og blómakörfu frá Húnaþingi vestra.

/Norðanátt.is

Fleiri fréttir