Framkvæmdir á gamla barnaskólanum hefjast í október

Ellefu nýjar íbúðir verða í gamla barnaskólanum./Mynd: Einar I Ólafsson
Ellefu nýjar íbúðir verða í gamla barnaskólanum./Mynd: Einar I Ólafsson

Friðrik Jónsson ehf. hyggst breyta gamla barnaskólanum á Freyjugötunni á Sauðárkróki í íbúðarhúsnæði. Um er að ræða ellefu íbúðir og áætlað er að verkið taki um 18 mánuði en hafist verður handa í október og verklok því í maí 2018. Það er Sýll ehf. sem annast framkvæmdir en Sýll er í eigu Friðriks Jónsson ehf og Snæbóls ehf.

Íbúðirnar ellefu verða um 65 til 150 fermetrar á stærð og eru allar hugsaðar sem söluíbúðir. Flestar þeirra henta best fólki sem er að byrja að búa eða þeim sem eru að minnka við sig. Sjö þeirra verða þriggja herbergja, tvær þeirra verða fjögurra herbergja og aðrar tvær verða tveggja herbergja.

Í Feyki, sem kemur út í dag, segir Einar I. Ólafsson, tæknifræðingur hjá Friðriki Jónssyni ehf. frá framkvæmdunum og þá má einnig sjá grunnteikningu af íbúðunum í blaðinu.

Fleiri fréttir