Framkvæmdir hafnar á Hólum

Landsmót hestamanna verður haldið dagana 27. júní til 3. júlí 2016 á Hólum í Hjaltadal. Framkvæmdir við mótssvæðið eru hafnar og unnið er hörðum höndum að því að aðstæður verði orðnar sem bestar þegar mótið hefst Á Hólum eru nú þegar þrjár reiðhallir, mikill fjöldi hesthúsplássa, töluvert gistirými og Sögusetur íslenska hestsins, sem styður við fyrirhugað Landsmótshald. 

Þær framkvæmdir sem nú standa yfir felast fyrst og fremst í því að útbúa og laga reiðvelli og áhorfendasvæði, en einnig ýmislegt annað tengt umgjörð mótsins. Aðalverktaki við framkvæmdirnar er Vélaþjónustan Messuholti ehf.

Eins og áður hefur komið fram er forsala miða á Landsmótið á Hólum 2016 hafin og hægt er að kaupa miða hér, en hagstæðast er að kaupa miða á mótið í gegnum forsölu. Lægstu verðin verða í boði til næstu áramóta en hækka eftir það og dýrast verður að kaupa miða í hliðinu á mótinu sjálfu. Miðaverð í forsölu hefur lækkað frá síðasta Landsmóti og börn undir 14 ára aldri þurfa ekki að greiða aðgangseyri. Með þessu vilja aðstandendur mótsins leggja áherslu á að Landsmót hestamanna sé fjölskylduskemmtun, og fjölmargt verður gert til að skapa afþreyingu fyrir alla fjölskylduna.

Þess má að lokum geta, að á næsta ári verða liðin 50 ár frá því Landsmót hestamanna var síðast haldið á Hólum í Hjaltadal, árið 1966.

Fleiri fréttir