Framkvæmdir í Húsi frítímans

Frá Húsi frítímans - úr myndasafni. Ljósm./BÞ
Frá Húsi frítímans - úr myndasafni. Ljósm./BÞ

Óvíst er hvenær skipulegt vetrarstarf getur hafist hjá Húsi frítímans á Sauðárkróki en miklar framkvæmdir standa yfir í húsinu. Á vef Svf. Skagafjarðar kemur fram að búið sé að opna á milli Húss frítímans og Sæmundargötu 7a. Lyftuhús sé að verða tilbúið og verið að standsetja fundarsal á efri hæðinni.

Á síðunni segir ennfremur að fundir sveitarstjórnar og fastanefnda sveitarfélagsins munu flytjast í Hús frítímans þegar framkvæmdum lýkur.

 

Fleiri fréttir