Framsóknarmenn á yfirreið um Skagafjörð
Frambjóðendur Framsóknarflokksins í fyrstu fjórum sætunum á Norðurlandi vestra halda opna fundi í Skagafirði um helgina og ætla að hefja yfirreiðina í Fljótunum. Þar hefst fyrsti fundur þeirra á morgun laugardag klukkan 13:00 í Ketilási og svo á Hofsósi. Þar hefst fundur klukkan 16:00 í Höfðaborg.
Á sunnudag verða svo frambjóðendurnir með fund í Miðgarði Varmahlíð og hefst hann klukkan 13:00. Allir eru hvattir til að koma og ræða við frambjóðendur um málefni og útfærslur.
Fyrr um daginn mun kosningaskrifsstofa Framsókna verða opnuð með pompi og prakt í Framsóknarhúsinu að Suðurgötu 3 kl. 16:00. Þar verður rjúkandi heitt kaffi og vöfflur og allir velkomnir.