Fresta þarf frumsýningu á Ófeigi
Vegna óviðráðanlegra orsaka verður íslenska kvikmyndin, Ófeigur gengur aftur, frumsýnd í Króksbíói fimmtudaginn 28. mars kl. 20:00 en ekki á miðvikudag eins og áður var auglýst. Um er að ræða gamanmynd eftir Ágúst Guðmundsson með Ladda, Ilmi, Sigga Sigurjóns og Halldóru Geirharðs í aðalhlutverkum.
Um myndina segir að Ófeigur, nýlátinn faðir Önnu Sólar, gengur aftur og fer að hlutast til um líf hennar og kærasta hennar, Inga Brjáns. Unga parið ætlar að selja hús hins látna en Ófeigur er því mótfallinn og vill ekki að þau flytji. Afskiptasemi afturgöngunnar er slík að Ingi Brjánn bregður á það ráð að reyna að kveða drauginn niður með aðferðum sem hann finnur í gamalli galdrabók.
HÉR er hægt að sjá stiklu úr Ófeigi.