Fréttir úr Neðra

Á vef Háskólans á Hólum segir að þær fréttir hafi borist úr neðra að nú sé búið að tengja starfsmannatölvuna í hesthúsunum við Internetið. Þar með sé búið að kippa starfsmönnum bús og hesthúsa inn í nútímann.

Eins og allir vita er á Hólum aðsetur víglubiskups Norðlendinga og ýmsar sögur og atburðir liðinna tíma tengdir staðnum sterkum böndum. Fræg er sagan af Galdra-Lofti sem reyndi að særa Gottskálk grimma úr gröf sinni til að komast yfir Rauskinnu en af þeirri bók átti að vera hægt að læra svo ramma galdra, að hægt væri að sigra kölska sjálfan og ná valdi yfir honum.

En nú er öldin önnur og aðrar galdrabækur í umferð en með þeirri sem kallað er Netið getur starfsfólk bús og hesthúsa loksins farið að skila vinnuskýrslum sínum frá vinnustaðnum sjálfum eins og segir á heimasíðunni. Ekki voru fréttirnar frá Kölska sjálfum heldur neðan úr hesthúsunum sem fá fyrir vikið viðurnefnið „í neðra“. Eins og sjá má af meðfylgjandi mynd sem Gunnar Óskarsson tók er vinnuaðstaðan ekkert slor.

Fleiri fréttir