Fröken Fabjúlöss mælir með: Kókosolíu!

Ef það er eitthvað sem Fröken Fabjúlöss er áhugasöm um þá eru það fegrunarlausnir sem finnast í hirslum eldhúsinnréttingarinnar! Það er alveg merkilegt hversu margar brilliant lausnir finnast í matvælaskápunum og ef hugmyndaflugið er frjótt þá í raun gæti hver einasta kona komist upp með það að sleppa því alfarið að kaupa sér húðvörur og stuðst við eldhússkápana í staðinn.

Undanfarinn mánuð eða svo hefur Frökenin staðið í smá rannsóknarverkefni með kókosolíu. Lengi hefur þessi dásamlega olía verið staðalbúnaður á heimili Fabjúlössmans, en svo gekk Frökenin skrefinu lengra og ákvað alfarið að nota kókosolíu á húðina á sér í nafni tilraunastarfseminnar. Síðan sú ákvörðun var tekin hefur Frökenin eingöngu notað kókosolíu- sem body lotion, andlitskrem og hreinsikrem og í hárið.

Frökenin er alveg í skýjunum með "nýju" alhliða snyrtivöruna sína og dásamar kókosolíuna í bak og fyrir sem andlitskrem og body lotion en umfram allt annað er olían einn sá allra besti farðahreinsir sem Frökenin hefur hnotið um! Hver einasta farðanotandi kona kannast við það hversu erfitt það getur tildæmis verið að ná af sér maskara. Sama hversu vel er þjösnast, þá einhvernveginn verða alltaf smá "klessur" eftir á augnhárunum og svo vaknar viðkomandi daginn eftir og minnir örlítið á þvottabjörn þegar litið er í spegilinn þar sem þessar örlitlu klessur hafa smitað snotrum svörtum skuggum undir augun. Þetta vandamál heyrir alveg sögunni til í herbúðum Fabjúlössmans eftir að kókosolían var tekin í brúkið!

Einnig hefur Frökenin verið að nota olíuna eins og fyrr segir sem andlitskrem og body lotion. Frökenin býr við það skemmtilega vandamál að eftir sturtu er andlitið venjulega álíka þurrt og meðal eyðimörk, og finnur Frökenin því húðina bókstaflega sjúga olíuna í sig eftir að hún er borin á og verður alveg dásamlega silkimjúk og falleg!

Nýjasta tilraunin í rannsóknarvinnunni er svo kókosolía sem hárvara. Bæði hefur Frökenin prufað að nota hana sem djúpnæringu, en þá útbýr hún blöndu sem samanstendur af 3 msk kókosolíu á móti 3 msk af kókosmjólk. Þessu er svo greitt í hárið og látið vera í allt frá klukkutíma og upp í það að vera yfir nótt áður en hárið er svo þvegið. Einnig er olían alveg brilljant í þurra enda, og það allra besta vopn gegn frizz sem Frökenin hefur höndum komið yfir!

Niðurstaða Fröken Fabjúlöss er sú að kókosolía er dásemd, bæði ódýr miðað við hversu lítið þarf af henni og algjörlega brilljant á allann hátt! Fröken Fab mælir eindregið með kókosolíu sem húðvöru!

 

Fleiri fréttir