Frumkvöðlasmiðja í Skagafirði

Frumkvöðlasmiðja hefst í húsnæði Farskólans í Faxatorgi á Sauðárkróki þann 6. maí nk. og stendur yfir í fjórar vikur.  „Í frumkvöðlasmiðju virkjum við sköpunarkraftinn og vinnum með hugmyndir!“ segir um námskeiðið á vef Farskólans. Leiðbeinandi í smiðjunni er G. Ágúst Pétursson en hann hefur margra ára reynslu af því að leiðbeina fólki í hugmyndavinnu, greiningu og áætlanagerð.

Í námskeiðslýsingu kemur fram að lagt verður áherslu á hugmyndaleit og hugmyndaþróun þar sem varpað er fram spurningunni: Hver eru tækifærin í umhverfinu og hvernig get ég nýtt þau? Gerðar verða markmiðasetningar og aðgerðaáætlanir og spurt: „Hver hefur til síns ágætis nokkuð“, og þá verður leitast eftir því að finna og nýta styrkleika hvers og eins. Einnig verður miðað að því að gera áætlun um árangur, markaðskönnun og markaðsáætlun, einfalda fjárhagslega áætlun og farið yfir sölu- og kynningartækni.

„Að námskeið loknu hefur þú í höndunum hugmynd og áætlun sem þú getur unnið með áfram og komið í framkvæmd,“ segir í námskeiðslýsingu.

Nánari upplýsingar má nálgast á vef Farskólans.

Fleiri fréttir