Fundartími hefur ekki fundist

Útlit er fyrir að nemendur sem vorið 2012 afhentu erindi til Sveitarfélagsins Skagafjarðar, og voru þá í 6. bekk Árskóla, verði komnir í 8 bekk þegar brugðist verður við erindinu af hálfu sveitarfélagsins. Erindið fjallar um útivistarsvæðið í Litla-Skógi á Sauðárkróki og var fræðslustjóra falið að finna tíma fyrir fund með nemendum.

Á fundi byggðaráðs nú í vikunni lét Þorsteinn T. Broddason bóka eftirfarandi:
"Á fundi byggðarráðs nr. 596 þann 28. júní 2012 var tekið fyrir erindi frá 6. bekk Árskóla um útivistarsvæðið í Litla-skógi og samþykkt að eiga fund með börnunum í upphafi skólaárs 2012. Á fundi nr. 601 þann 30. ágúst 2012 var málið tekið fyrir aftur að frumkvæði áheyrnarfulltrúa Samfylkingarinnar, en þá var samþykkt að fela fræðslustjóra að finna tíma fyrir fund með nemendunum. Fundurinn hefur enn ekki verið haldinn og ljóst er að ekki verður hægt að funda með nemendunum fyrr en í fyrsta lagi í haust, í ljósi þess að skólanum lýkur á næstu dögum. Seinagangur í þessu tiltölulega einfalda verkefni byggðarráðs er með ólíkindum og sendir döpur skilaboð um áhugaleysi stjórnmálamanna um málefni sem brenna á íbúum sveitarfélagsins.“

FeykirTV var á staðnum á sínum tíma þegar nemendurnir afhentu erindið og þau Margeir Friðriksson fjármálastjóri og Herdís Sæmundsdóttir fjármálastjóri veittu því viðtöku.

Fleiri fréttir