Fundur um Blöndulínu 3

Upplýsinga- og umræðufundur um stöðu mála varðandi forsendur, skipulag, umhverfismat og leyfisveitingar vegna Blöndulínu 3 (220kV) verður haldinn meðal íbúa, landeigenda, sveitarstjórnarmanna í Hörgársveit laugardaginn 20. október  2012 kl. 10:00-14:00 í veitingahúsinu Engimýri í Öxnadal.

Í tilkynningu um málið segir að allir sem vilji kynna sér málin séu velkomnir meðan húsrúm leyfir og eru Skagfirðingar og Húnvetningar sem eitthvað um málið hafi að segja hvattir til að mæta enda um sameiginlegt hagsmunamál að ræða.

Fleiri fréttir