Fundur um vaxtasamning á Gauksmýri í dag

Síðasti fundur um nýjan vaxtasamning á Norðurlandi vestra verður haldinn í dag fyrir íbúa Húnaþings vestra á Gauksmýri og hefst kl. 12:00 á hádegi. Á fundinum verður nýr vaxtarsamningur kynntur og farið yfir umsóknargerð og matsgögn.

Þeir sem hyggjast standa fyrir verkefnum á næstu misserum, sem fallið gætu að áherslum vaxtarsamningsins, eru eindregið hvattir til að mæta og eru allir velkomnir.

Vaxtarsamningur Norðurlands vestra óskar eftir umsóknum um styrki en umsóknarfrestur er til kl. 17:00, föstudaginn 17. febrúar 2012.

Sækja skal um með rafrænum hætti á eyðublöðum sem fást á vefsíðunni: http://www.ssnv.is

Fleiri fréttir